líf.is

Rétthafa­samningur Sjónvarpsins og iss!

Þegar þú sendir mynd í Sjónvarpið á líf.is, eða birtir verk með mynd á iss!, hakar þú við þennan samning. Hann segir hvað við megum gera við myndina og hvað þú staðfestir um hana. Samningurinn er á milli þín og Félagasamtakanna Myndarsagna, sem reka líf.is og Sjónvarpið.

Útgáfa 22. nóvember 2026. Útgáfan og tími samþykkis eru skráð með hverri innsendingu. Fyrri útgáfa (17. nóvember 2026).

Þú átt myndina áfram

Höfundarétturinn og önnur réttindi yfir myndinni eru áfram þín. Samningurinn veitir okkur aðeins leyfið sem lýst er hér að neðan. Leyfið er ekki einkaleyfi: þú mátt áfram sýna, selja, gefa út eða senda myndina hvert sem þú vilt.

Leyfið sem þú veitir

Þú veitir Myndarsögum leyfi, án endurgjalds, til að:

Leyfið gildir um allan heim, því Sjónvarpið er sent út á netinu, og þar til þú afturkallar það.

Verk sem þú birtir á iss!

Þegar þú birtir verk með mynd á iss! (iss.mis.is) og hakar við „Ég hef lesið skilmálana“ gildir þessi samningur um verkið. Það birtist strax á iss! og fer í safn Sjónvarpsins til yfirferðar. Sjónvarpið má þá sýna það eins og innsenda mynd. Sama gildir um verk sem þú sendir á iss! úr Gerðinni eða Tónlistarsmiðjunni.

„Mynd“ merkir hér myndskeið, eða lag með mynd (sýnt sem kyrrmynd á meðan lagið hljómar).

Þú tekur færslu af iss! í Mín skrif. Leyfið til Sjónvarpsins afturkallar þú með pósti á post@líf.is eins og áður (innan 14 daga).

Það sem við gerum ekki

Það sem þú staðfestir

Með því að haka við samninginn staðfestir þú að:

Ef myndin varð til í námi eða starfi skaltu ganga úr skugga um að skólinn eða vinnustaðurinn eigi ekki réttindi sem standa í vegi fyrir leyfinu.

Ef þú ert yngri en 18 ára þarf forráðamaður þinn að lesa samninginn með þér og samþykkja hann áður en þú sendir.

Yfirferð og dagskrá

Umsjón Sjónvarpsins fer yfir hverja innsendingu. Við ákveðum hvort og hvenær myndin er sýnd, og innsending tryggir ekki sýningu. Við getum tekið myndina úr dagskrá hvenær sem er, til dæmis ef í ljós kemur að réttindi vantar.

Þú getur hætt við

Þú getur afturkallað leyfið hvenær sem er með pósti á post@líf.is. Taktu fram heiti myndarinnar og kvittunarnúmerið úr Innsendingunum mínum. Við tökum myndina úr dagskrá og safni Sjónvarpsins innan 14 daga. Útsendingar sem þegar hafa farið fram og kynningarefni sem þegar hefur verið prentað verða ekki dregin til baka.

Persónuupplýsingar

Með innsendingunni vinnum við með myndskeiðið, heiti þess, höfundarnafn, lýsingu og Líf auðkennið sem tengir kvittunina við þig, auk útgáfu og tíma samþykkis. Netfang og auðkennisorð fylgja ekki til umsjónar. Nánar um vinnsluna í persónuverndarupplýsingum líf.is.

Breytingar á samningnum

Ef samningnum er breytt fær hann nýja útgáfu og nýja dagsetningu á þessari síðu. Ný útgáfa gildir aðeins um myndir sem sendar eru eftir að hún er birt, nema þú samþykkir hana sérstaklega.

Um samninginn gilda íslensk lög.