líf.is

Verkin þín og gögnin þín

Félagasamtökin Myndarsögur reka Líf og eru ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga í okkar þjónustu. Hafðu samband á post@líf.is vegna gagna, eyðingar eða spurninga.

Þessar upplýsingar ná til Líf-appsins, Líf auðkennis og tengdrar þjónustu okkar. Þær gilda frá 11. október 2026 og voru uppfærðar 5. nóvember 2026 með upplýsingum um Líf í úrinu, Bý, Mý og Skammsýn, 9. nóvember 2026 um tilkynningar Skammsýnar og Tal, líka í Android-símum, og 13. nóvember 2026 um deilingu í Tal og forsýn hlekkja. Ytri vefir og miðlaþjónustur hafa einnig eigin persónuverndarreglur.

Þú getur byrjað án auðkennis

Perlu og Klippi geta geymt verk, myndgögn og vinnustöðu á tækinu. Líf geymir líka staðbundnar stillingar, lesstöðu, uppáhald og safnskrá. Þú getur unnið án þess að tengja auðkenni. Netsamskipti vegna dagskrár, miðla og annarra netverkfæra geta samt átt sér stað.

Auðkenni og einkasafn

Ef þú stofnar eða tengir Líf auðkenni vinnur þjónustan með birtingarnafn, auðkennisnúmer, innskráningarstaðfestingu og sessur. Netfang er valkvætt en er notað við staðfestingu og þær póstleiðir sem þú velur.

Studd verk, myndgögn, breytanleg hönnun, útgáfur, lesstaða, slóðir uppáhalds og studd leikjaframvinda tengjast auðkenninu til að færa safnið milli tækja. Þegar þú tengir auðkenni sameinast studd gestaverk af tækinu einkasafni þess. Samstilling þarf net og getur beðið við netrof. Vistun og samstilling eru ekki opinber birting.

Tilgangur vinnslunnar

Við notum samþykki þar sem þú velur valfrjálsa póstskráningu eða veitir heimild, framkvæmd þjónustu sem þú óskar eftir vegna auðkennis og samstillingar, og lögmæta hagsmuni vegna nauðsynlegs rekstrar og öryggis. Þú getur afturkallað valfrjálst samþykki og óskað upplýsinga um tiltekna vinnslu.

Tal og Lífvinir

Tal geymir birtingarnafn, aðild að samtölum og skilaboð svo þú getir rætt við aðra með Líf auðkenni. Einkasamtöl og lokuð rými eru aðgangsstýrð. Samtölin eru ekki enda á milli dulkóðuð; umsjón Tal getur skoðað tilkynnt skilaboð.

Lífvinir eru valfrjálsar tengingar milli tveggja auðkenna. Sendandinn útbýr boð og viðtakandinn samþykkir sérstaklega. Við geymum hverjir eru Lífvinir, samþykktar beiðnir og boðsgögn til að birta þér eigin vini og opna rétt einkaspjall. Vinalistinn er ekki opinber notendaskrá. Tal les ekki símaskrá símans. Boð má deila sem hlekk eða QR-kóða; það gildir fyrir einn vin í sólarhring og má afturkalla.

Þú getur fjarlægt Lífvin; þá hverfur vinatengingin hjá báðum en áður samþykkt samtal varðveitist. Þöggun lokar einkasamskiptum og fjarlægir vinatenginguna. Að hætta að þagga stofnar hana ekki aftur. Eigin vinir og beiðnir fylgja gagnaútflutningi Tal. Eyðing Líf auðkennis fjarlægir Tal-gögn, vinatengingar og boð og uppfærir stýrð afrit.

Í þinni eigin símaskrá Tal geturðu merkt samþykktan Lífvin sem ritstjóra, leikstjóra, hönnuð, höfund, listamann eða framleiðanda. Merkingarnar eru einkaflokkun þín og fylgja auðkenninu milli tækja. Þær eru ekki birtar öðrum sem staðfest starfsheiti og veita ekki aðgang eða ritstjóraheimild að skjölum. Þær hverfa þegar vinatengingunni er eytt eða aðgangur þaggaður.

Deila í Tal og hlekkir

Úr deilivalmynd símans getur þú sent hlekk eða texta úr öðrum öppum til Lífvina og hópa í Tal. Aðeins það sem þú velur fer, og aðeins eftir að þú ýtir á Senda; það verður að venjulegum skilaboðum í Tal. Svo að vinir og hópar birtist í deilivalmyndinni skráir Líf samtöl þín í Tal í samskiptasögu tækisins, á iPhone hjá Apple og á Android sem flýtileiðir í símanum; ekkert af því fer til okkar. Á iPhone geymir deiliviðbótin lista yfir nöfn vina og samtala á tækinu svo hún opnist hratt, og honum er eytt við útskráningu eða skipti á Lífauðkenni.

Þegar skilaboð innihalda hlekk sækir þjónn Tal einu sinni titil og deilimynd síðunnar sem hlekkurinn bendir á, eftir að skilaboðin eru send. Síðan sér aðeins að þjónn Tal sótti hana, ekki hver sendi hlekkinn eða hver les hann. Við geymum titilinn og minnkað afrit af myndinni ásamt fingrafari slóðarinnar, en ekki slóðina sjálfa, sem er aðeins í skilaboðunum. Forsýnin birtist aðeins þeim sem sjá skilaboðin, og appið og vafrinn sækja myndina til okkar, svo tæki viðtakenda tengjast síðunni ekki fyrr en smellt er á hlekkinn. Forsýninni er eytt þegar engin skilaboð vísa lengur á slóðina, til dæmis þegar hlekkurinn er tekinn úr skilaboðum, skilaboðunum er eytt eða Lífauðkenni er eytt.

Valfrjálsar skilaboðatilkynningar

Þegar þú velur tilkynningar í Tal tengjum við tæknilegt tilkynningaauðkenni tækisins við virkt Lífauðkenni þitt. Apple Push Notification service afhendir tilkynningarnar, en þær bera aðeins auðkenni samtals og skilaboða. Síminn sækir sjálfur til okkar nafn og mynd sendanda, heiti og mynd hóps, skilaboðin og límmiða sem fylgja, svo þau fara ekki um Apple. Mynd sendandans birtist sem sendandi tilkynningarinnar; til þess skráir Líf sendandann í samskiptasögu tækisins hjá Apple, en ekkert af því fer til okkar. Tilkynningar berast úr einkasamtölum og hópum sem þú ert í, ekki úr opnum rýmum, og þú getur þaggað einstök samtöl. Á læstum skjá ræður forskoðunarstilling iPhone. Þegar vinur opnar Tal-línuna í einkasamtali ykkar eða í hópi sem þú ert í hringir síminn, líka þegar Líf er lokað: Apple afhendir símtalsboð með auðkennum einum, síminn sækir nafnið til okkar og hringingin hættir þegar línunni er lokað. Í Kína opnast línan án símtals.

Á Android afhendir Firebase Cloud Messaging (Google) tilkynningar og símtalsboð Tal. Google fær aðeins tæknilegt tilkynningaauðkenni tækisins og auðkenni samtals, skilaboða eða hringingar, aldrei skilaboðin, nöfn eða myndir; síminn sækir þau sjálfur til okkar, eins og á iPhone. Tilkynningaauðkennið verður aðeins til þegar þú kveikir á tilkynningum í Tal og því er eytt þegar þú slekkur á þeim. Þegar vinur opnar Tal-línuna hringir síminn, á heilum skjá ef hann er læstur, og hringingin hættir þegar línunni er lokað, svarað er í öðru tæki eða eftir 45 sekúndur. Myndir í tilkynningum eru geymdar í skyndiminni appsins á tækinu.

Þú getur slökkt á tilkynningum í Tal eða í stillingum símans án þess að missa aðgang að samtölunum. Útskráning, prófílskipti, afturköllun innskráningarsessu og eyðing auðkennis aftengja tilkynningar þess auðkennis. Við netrof bíður aftenging við þjóninn netsambands; þegar sendar almennar tilkynningar geta borist síðar.

Einkaverk í Rit Lífi

Rit Líf varðveitir texta, töflur og spjöld á tækinu. Með tengdu Lífauðkenni samstillast studd Rit-skjöl og útgáfur þeirra í einkasafnið. Að opna Rit úr samtali í Tal deilir hvorki samtalinu né skjalinu sjálfkrafa. Þú velur sérstaklega útflutning, prentun eða deilingu og hvaða efni fer til viðtakanda.

Samvinna í Rit Lífi

Þegar þú velur að hefja samvinnu verður til aðgangsstýrt samvinnuafrit af vistuðu riti. Upprunalega einkaritið helst í einkasafninu. Eigandi samvinnuverksins velur hverjum er boðið og hvort viðkomandi fær höfundar- eða ritstjóraheimild. Sá sem fær boð þarf að tengja Lífauðkenni og samþykkja það. Samvinnuverkið verður ekki opinbert við þessa aðgerð.

Þátttakendur sjá samþykktan texta, breytingatillögur, athugasemdir og útgáfusögu verksins ásamt birtingarnöfnum höfunda og ritstjóra. Við geymum aðild, heimildir og höfundaupplýsingar til að tengja hverja tillögu og ákvörðun við rétt auðkenni. Litir hjálpa til við að greina höfunda að; þeir eru ekki sjálfstæð auðkennisstaðfesting. Eigandi og ritstjórar samþykkja eða hafna tillögum. Höfundar geta lagt til breytingar og skrifað athugasemdir, en breyta ekki samþykktum texta án samþykkis.

Eigandi getur afturkallað boð og aðgang þátttakanda. Það stöðvar frekari aðgang að sameiginlega verkinu í þjónustunni en tekur ekki til baka afrit eða útflutning sem viðtakandi hefur þegar vistað. Samvinna þarf netsamband; ósendar tillögur eru aðskildar frá samþykktum texta.

Myndir, hljóð, staðsetning og deiling

Þú stjórnar heimildum myndavélar, hljóðnema og staðsetningar í stillingum tækisins. Verkfæri geta óskað eftir þeim vegna aðgerðar sem þú velur. Mynd sem þú bætir við studd verk getur samstillst með einkasafninu ef auðkenni er tengt. Staðsetningar- og önnur netverkfæri geta þurft samskipti við sínar þjónustur; heimild tækisins ein merkir ekki að allar upplýsingar haldist staðbundnar.

Þegar þú velur deilingu, prentun eða sendingu myndar berast þau gögn sem þú velur til viðtakanda eða þjónustu sem sér um aðgerðina. Afrit hjá viðtakanda eru utan einkasafns Líf. Ekki birta persónuupplýsingar annarra án heimildar.

Líf í úrinu, Bý og Mý

Úrappið geymir stillingar, framvindu Bý og Mý og tilkynningaval á úrinu. Hvort dýr hefur eigið val um tilkynningar og staðbundið veður. Þegar dýr er falið í stillingum Líf hverfur kúlan og tilkynningum þess er hætt þegar valið berst úrinu; vistaði heimurinn helst. Að fela kúlu eyðir ekki gögnum.

Ef þú velur staðbundið veður í Bý eða Mý er staðsetning námunduð að tveimur aukastöfum og send til veðurþjónustu Líf (gögn frá Veðurstofu Íslands) á Íslandi og til MET Norway utan Íslands eða ef fyrri þjónustan svarar ekki. Grófur staður og spá eru geymd á úrinu. Veðurþjónustur geta einnig skráð IP-tölu og staðarhnit í tæknilega beiðnilogga; notkunarskilmálar MET Norway lýsa þeirri skráningu. Stjörnuhiminn og Spil nota hreyfingu þegar þú virkjar hana; hrá hreyfigögn eru hvorki vistuð né send til okkar.

Skammsýn og Heilsugögn

Skammsýn er valfrjáls einkaleið undir Mitt líf á síma og úri. Með sérstöku leyfi þínu les hún svefn, skref, æfingar, virknihringi, hvíldarpúls, breytileika hjartsláttar og súrefnisupptöku úr Heilsu (HealthKit). Ekkert er skrifað í Heilsu. Mælingar og úrvinnsla þeirra haldast á tækinu; þær fara ekki á okkar vefþjóna og eru ekki notaðar í auglýsingar eða rakningu. Þú getur breytt lesheimildum í Heilsu eða stillingum Apple-tækisins.

Stillingar, valinn karakter og einkadagbók geta flust beint milli paraðs síma og úrs með WatchConnectivity. Þau gögn fara ekki í almenna úrskífugeymslu eða einkasafn Líf á vefnum. Heilsumælingarnar sjálfar birtast aðeins í Skammsýn. Úrskífuviðbætur og tilkynningaviðbætur fá ekki aðgang að HealthKit.

Skammhlauparinn er valfrjáls skáldaður karakteraleikur í Skammsýn. Hann felur ekki í sér raunverulegan hlaupara, greiðslu eða staðsetningareftirlit. Áminningar Skamm sýna skilaboðin sjálf. Sumar nefna tölu sem tækið reiknar, svo sem vikuskömm, mínútur sem vantar upp á hreyfingu vikunnar eða svefnskort. Tilkynningar karakters sýna mynd, nafn og skálduð skilaboð. Mynd Skamm eða karaktersins birtist sem sendandi tilkynningarinnar; til þess skráir Líf sendandann í samskiptasögu tækisins hjá Apple, en ekkert af því fer til okkar. Tilkynningar lúta forskoðunarstillingum Apple; með forskoðun „Þegar ólæst“ sést textinn ekki á læstum skjá. Tilkynningar má stöðva í leiknum eða stillingum tækisins. Hvíld og Ekki í dag stöðva karakteraboð. Skammsýn veitir upplýsingar til eigin yfirsýnar og kemur ekki í stað læknisfræðilegrar greiningar eða meðferðar.

Stjörnulíf og deilihlekkir

Í Stjörnulífi velur þú nafn, fæðingardag, valfrjálsan fæðingartíma, fæðingarstað og þá málfræðilegu kynmynd sem textinn á að nota. Gögnin eru geymd í vafrageymslu á tækinu og send til okkar þjónustu þegar hún reiknar prófíl eða niðurstöðu. Fornafnið er sent frá þjóninum til Beygingarlýsingar íslensks nútímamáls hjá Árnastofnun til að fá beygingarmyndir þess.

Ef þú velur að deila stjörnuprófíl eða samanburði eru innsláttarupplýsingarnar kóðaðar í deilihlekkinn. Kóðunin er ekki dulkóðun: sá sem fær hlekkinn getur lesið þær. Opnun hlekksins sendir hann til þjónsins og hann getur birst í aðgangsloggum. Deildu aðeins upplýsingum sem þú vilt afhenda viðtakandanum, líka þegar þær varða aðra manneskju.

Opinbert efni og leikir

Ef þú velur að birta færslu, mynd, lista, spurningaleik eða annað efni geta birtingarnafn, efni og viðeigandi upplýsingar sést öðrum. Samskipti og sameiginlegir leikir geta líka miðlað leikgögnum til annarra þátttakenda. Það er annað en einkavistun í Mitt líf.

Í ys á mis.is velur þú gestanafn til að veiða teiknimyndadýr og byggja með hlutum úr Eyju. Gestanafn, litur, staðsetning verks og ógegnsætt höfundarauðkenni sjást öðrum gestum. Leynilykill gestsins er geymdur í vafrageymslu tækisins og þjónninn geymir aðeins hash þess lykils til að staðfesta aðgerðir. Gesturinn í ys er aðskilinn frá Líf auðkenni. Þjónninn varðveitir dýrapunkta, opnaðar hlutagerðir, virkan spilatíma, nýjustu staðsetningu leikmanns og niðurstöður aðgerða til að halda utan um framvindu, vistun og réttmæti kaupa. Punktar og framvinda eru ekki birt öðrum gestum. Þú getur tekið niður þín eigin verk og tilkynnt verk til umsjónar. Gögn um gesti, framkvæmdir og tilkynningar hafa ekki sjálfvirkan eyðingarfrest í núverandi þjónustu; hafðu samband vegna eyðingarbeiðni. IP-tala er notuð við tæknileg samskipti og til að takmarka misnotkun. Aðgerðateljarinn í ys geymir dulnefnda daglykla en ekki hráa IP-tölu.

Í Teikni berast teikningar, birtingarnafn, ágiskanir og leikstaða til annarra þátttakenda. Í Teikni-einvíginu tengjast tæki leikmanna beint hvert við annað (WebRTC). Til að finna hvert annað senda þau dulkóðaðar tengiupplýsingar um opinbera Nostr-tengimiðlara, og STUN-þjónustur Google og Cloudflare aðstoða við tenginguna. Þegar bein tenging næst ekki, til dæmis milli ólíkra neta, fer dulkóðuð umferð leiksins um varaleið hjá Cloudflare. Þessir aðilar sjá IP-tölu tækisins, hvenær það tengist og önnur tæknileg tengigögn, en ekki teikningar, ágiskanir eða nöfn. Leikurinn getur geymt tímabundið afrit stöðu á tæki gestgjafans og þátttakendur geta vistað myndir sem þeir fá.

Þegar þú sendir verk í Sjónvarpið (líf.is/sjonvarp eða úr Gerðinni) geymum við myndskeiðið eða hlekkinn, heiti, höfundarnafn, lýsingu, tegund efnis, svör þín um réttindi og tónlist, hvenær þú samþykktir rétthafasamninginn og, þegar þú gefur þau upp, netfang og símanúmer. Þetta er geymt í lokaðri móttöku tengdri Líf auðkenninu þínu. Aðeins umsjón Sjónvarpsins sér það, og netfangið og símanúmerið eru aðeins notuð til að hafa samband um verkið; þau birtast hvergi. Umsjón skráir líka yfirferð sína, til dæmis um réttindi og stað í dagskrá, og þú sérð stöðuna í Innsendingunum mínum. Þú getur beðið um að verki sé eytt á post@líf.is, og ef þú eyðir Líf auðkenninu eyðast innsendingarnar úr móttökunni. Verk sem þegar er komið í safn eða dagskrá Sjónvarpsins tökum við út þegar þú biður um það.

Á dagskrársíðunni getur þú sent myndbandstillögu og netfang. Þau eru geymd í tillögusafni sem umsjón skoðar og netfangið er notað vegna tillögunnar. Innsendar myndir á Vegginn fara í bið eftir samþykkt; samþykkt mynd er opinber, en netfang sendanda birtist ekki með henni.

Nýjar opinberar færslur í iss og innsendingar á Vegginn krefjast tengds Líf auðkennis og fara í bið eftir yfirferð umsjónar. Hver þjónusta fær skammlífa birtingarheimild og notar sérstakt dulnefnt höfundarauðkenni; innskráningarorðin fara ekki til hennar. Birting getur verið stöðvuð fyrir auðkenni vegna misnotkunar, líka þegar birtingarnafni er breytt. Eldri efni kunna að hafa verið birt án þessarar tengingar.

Í efnisvalmyndinni við iss-færslu eða verk á Veggnum geturðu valið Tilkynna, Fela færslu eða, þegar höfundur er auðkenndur, Fela efni frá höfundi. Falið efni er geymt sem staðbundin stilling á tækinu og hægt er að sýna það aftur í Mitt líf → Falið efni. Fela fjarlægir ekki efnið hjá öðrum. Tilkynningar berast umsjón með tilvísun í efnið. Þjónninn notar IP-tölu til að takmarka misnotkun; á Veggnum er dulnefndur daglykill skráður með tilkynningunni til að takmarka endurtekningar. Tilkynningar og útilokanir hafa ekki sjálfvirkan eyðingarfrest í núverandi kóða.

Ef þú vilt tilkynna annað efni eða óska fjarlægingar þess skaltu hafa samband á post@líf.is með heiti eða slóð. Við gætum þurft að staðfesta tengsl þín við gögnin áður en við afhendum þau eða fjarlægjum.

Hýsing, vefkökur og ytri miðlar

Hostinger veitir hýsingu og póstþjónustu sem notuð er í rekstrinum. Netþjónar og miðlaþjónustur fá tæknilegar upplýsingar við tengingu, svo sem IP-tölu, beiðni og upplýsingar frá tæki eða vafra. Sesskökur og staðbundin geymsla styðja innskráningu, stillingar og vinnustöðu.

Vefirnir okkar nota einnig eigin síðuflettinga- og aðgerðateljara. Hann geymir samantektir eftir síðu, aðgerð, tíma og skjástærðarflokki. Fyrir áætlun um gestafjölda notar hann tímabundna dulnefnda lykla úr IP-tölu og vafraupplýsingum með dagssalti; hann geymir ekki hráa IP-tölu í teljaragagnagrunninum. Lyklar og sölt fyrri daga eru hreinsuð við næstu mótteknu talningarbeiðni, en samantektir hafa ekki sjálfvirkan eyðingarfrest í núverandi kóða. Teljarinn notar ekki vefkökur og er ekki tengdur Líf auðkenni. Talning er óvirk á innbyggðum síðum sem nota staðbundinn uppruna appsins og þjónninn hafnar talningarbeiðnum frá innbyggðum vöfrum sem auðkenna sig sem Líf-appið. Þetta stöðvar ekki nauðsynlega aðgangs- eða öryggislogga hýsingaraðila.

Sumt efni getur verið innfellt frá YouTube/Google, Vimeo, Spotify eða SoundCloud. Þegar það efni hleðst geta gögn borist þessum aðilum og þeir geta notað vefkökur eða aðra geymslu samkvæmt eigin reglum. Tilvist persónuverndarstillingar í spilara tryggir ekki að engin gögn berist frá tækinu. Smámyndir YouTube geta hlaðist áður en spilun er valin; sumir innfelldir spilarar hlaðast þegar efnið nálgast skjáinn. Letur eða aðrar skrár geta einnig verið sóttar frá ytri skráaveitum, svo sem Google Fonts eða jsDelivr.

Sjónvarp og annað netefni eru sótt frá þeim miðlaþjóni sem hýsir viðkomandi skrá. Ytri tenglar geta opnað aðra vefi sem hafa eigin vinnslu. Enginn auglýsinga- eða rakningar-SDK er innbyggður í native hluta Líf-appsins; það er ekki yfirlýsing um að allir ytri vefir og innfellingar séu án gagnasöfnunar.

Gögn geta verið unnin á öðrum stöðum en Íslandi af hýsingar- og miðlaþjónustuaðilum. Þjónustuveitandi, miðill og sú aðgerð sem þú velur ráða því hvaða gögn berast hverjum aðila. Þú getur óskað nánari upplýsinga um tiltekna vinnslu hjá okkur.

Varðveisla og eyðing

Staðbundin verk varðveitast á tækinu þar til þeim eða appgögnum er eytt. Einkasafn og studd framvinda á þjóninum varðveitast meðan auðkennið og gögnin eru til staðar, þar til þú eyðir þeim eða biður um eyðingu. Opinber birting og afrit sem send hafa verið öðrum þurfa sérstaka meðferð.

Veldu Mitt líf → Eyða Líf auðkenni og staðfestu eyðingu. Hún fjarlægir auðkennið, einkasafn og eldri útgáfur, tengda lesstöðu, uppáhald, tengda póstskráningu og studda leikjaframvindu. Innskráningar og leikjaheimildir verða afturkallaðar. Við netrof geturðu valið Ljúka eyðingu auðkennis þegar samband næst. Gestaverk sem tilheyra ekki eydda auðkenninu halda sér.

Við eyðingu auðkennis hverfa samvinnuverk í Rit Lífi sem það á. Í samvinnuverkum annarra eigenda hverfa aðild, óafgreiddar tillögur og athugasemdir eydda aðgangsins og höfundaupplýsingar í varðveittri sögu verða ópersónugreinanlegar. Texti sem hefur þegar verið samþykktur sem hluti af verki annars eiganda helst í því verki. Sama meðferð nær til gagnagrunnsafrita sem auðkennisþjónustan sjálf stýrir.

Eyðingarferlið hreinsar gagnagrunnsafrit sem auðkennisþjónustan sjálf stýrir. Lágmarks eyðingarskrá með ógegnsæju auðkennisnúmeri er varðveitt til að koma í veg fyrir endurvakningu eyddra gagna við endurheimt; hún inniheldur ekki eydd verk eða innskráningarorð. Kvittun sem gerir kleift að ljúka eyðingu eftir tapað netsvar gildir í 30 daga. Virkar innskráningarsessur gilda í allt að 30 daga. Innskráningarhlekkir í tölvupósti gilda í 30 mínútur og staðfestingarhlekkir póstáskriftar í tvo daga; notaðir hlekkir eru afturkallaðir. Sendiskrá póstþjónustunnar takmarkast við síðustu 30 daga og að hámarki 100 færslur við nýja skráningu sendingar. Afskráning stöðvar mánaðarbréf en er annað en eyðing auðkennis eða beiðni um eyðingu gagna.

Afrit hjá hýsingaraðila eru sérstök: samkvæmt opinberri lýsingu Hostinger eru sjálfvirk dagleg afrit geymd í sjö daga og vikuleg í sex vikur. Vikuleg afrit sem ná sex vikur aftur hafa verið staðfest í þessum hýsingaraðgangi. Dagleg afrit gilda þar sem þau eru virk í hýsingaráætluninni. Eyðing úr virku safni er því ekki loforð um tafarlausa eyðingu úr öllum hýsingarafritum.

Varðveislutími aðgangs- og öryggislogga hjá hýsingaraðila er ekki staðfestur hjá okkur. Slík gögn geta verið varðveitt vegna afhendingar, bilana eða öryggisatvika og samkvæmt loggaskiptum þjónustuveitanda. Við getum ekki gefið upp staðfestan hámarksfjölda daga fyrir þau í þessari útgáfu upplýsinganna. Hafðu samband vegna nánari upplýsinga eða eyðingarbeiðni.

Réttindi þín og aðstoð

Þú getur óskað aðgangs að persónuupplýsingum þínum, leiðréttingar, eyðingar, takmörkunar vinnslu eða afhendingar gagna þar sem við á, og andmælt vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum. Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu áður en það var afturkallað. Við gætum þurft að staðfesta auðkenni þitt til að vernda gögnin.

Sendu beiðni á post@líf.is; ekki senda innskráningarorðin þín. Ef mál varðar barn getur forráðamaður haft samband vegna gagna þess. Þú getur einnig leitað til Persónuverndar.